Vinsæl tómstundaiðja sagnfræðinga er að velta fyrir sér spurningunni: Hvað ef…?
Hvað ef… Gandhi hefði tekist að halda Pakistan og Indlandi saman sem einu ríki?
Hvað ef… Bandaríkjastjórn hefði tekið á móti Kastró þegar hann reyndi að ná tali af leiðtogum þeirra eftir byltinguna og hún gefið grænt ljós á valdaskiptin?
Hvað ef… hrukkudýrin sem tóku við af Brésnjeff hefðu lifað í áratug en ekki í nokkra mánuði?
Hvað ef… Neil Kinnock hefði ekki verið á einkaflippi og tekist að vinna kosningarnar?
…þið skiljið plottið…
Jæja, í ljósi atburða síðustu daga, þá er hér eitt íslenskt dæmi til að spreyta sig á:
Hvað ef… núverandi meirihlutaflokkum borgarstjórnar Reykjavíkur (með Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra klappandi á hliðarlínunni) HEFíI TEKIST ætlunarverk sitt að skuldbinda Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavíkurborg til að fara út í skrilljónafjárfestingu í þriðja heiminum ásamt þrotabúinu FL-Group og fallít-bankanum Glitni kortéri áður en lánsfjárkreppan skall á í heiminum?
Spurningin er: á skalanum 1 til 10 – í HVERSU djúpum skít værum við Reykvíkingar þá?