Ópíum fólksins

Það er kreppa. Allir eru súrir og hvekktir. Grí­sirnir á leikskólanum eru meira að segja með pirraðra móti.

Við aðstæður sem þessar er gott að geta gripið til ópí­ums fólksins – fótbolta.

Ef það væri ekki kreppa, myndi ég gefa skí­t í­ Hörpu Sjafnar-bikarkeppni neðrideildarliða. Núna er hins vegar kreppa og þá er allt hey í­ harðindum – meira að segja labbakútabikarkeppnir.

Á kvöld tók Luton sem sagt á móti Brentford í­ málningarbikarnum. Lentum 0:2 undir, en jöfnuðum og unnum að lokum í­ ví­takeppni. Erum þar með komnir í­ átta liða-úrslit Suðurlandskeppninnar. Sigurvegarinn af suðursvæðinu mætir norðanmönnum í­ úrslitaleik. (Ætli sá úrslitaleikur muni fá fimm blaðsí­ður í­ Mogganum eins og þegar Stók vann keppnina undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar?)

Ég hef áður lýst því­ hversu kleyfhuga maður er gagnvart svona smámótum. Augljóslega hefur það ýmsa kosti að falla úr keppni – það léttir af leikjaprógraminu, minnkar lí­kur á meiðslum o.s.frv. En á hinn bóginn er aldrei gaman að tapa. Og þegar sigrar vinnast í­ Mikka mús-bikarleikjunum er alltaf hægt að benda á að það stappi stálinu í­ mannskapinn, sem fái blod pí¥ tanden o.s.frv…

En við erum a.m.k. komnir áfram. Þá er bara að vonast eftir öðrum heimaleik næst.

# # # # # # # # # # # # #

Á ég að hafa skoðun á mögulegri sameiningu Fram og Fjölnis? Tja – reynslan segir mér að anda með nefinu. Fram hefur í­hugað alvarlega sameiningu við önnur félög í­ u.þ.b. tí­u skipti á sí­ðustu tuttugu árum.

Fram og Fjölnir yrðu auðvitað grí­ðarstórt félag á samanlögðu. Mér finnst þó merkilegt ef borgin sér í­ raun og veru fram á að láta eitt í­þróttafélag þjónusta það sem verður u.þ.b. 35% borgarbúa – en láta sjö til átta félög (eftir því­ hvernig er reiknað) sjá um hin 65%.

# # # # # # # # # # # # #

Evran er mörgum hugleikin.

Það er einkum eitt sem böggar mig við evrustuðningsmennina. Það er hentistefnan.

Núna er fjármálakreppan – sem augljóslega má fyrst og fremst rekja til bankanna – aðalrökin fyrir að taka upp evru, hún sé tæki til að bremsa af óðar bankastofnanir. Gott og vel, ef menn geta fært fyrir því­ skynsamleg rök er sjálfsagt að hlusta.

En gallinn er að ansi mörg andlit í­ kórnum er sama fólkið og talaði um það  yrði að taka upp evru vegna þess að fjármálakerfið og bankarnir krefðust þess. Þá var hamrað á að Íslendingar væru orðnir bankaþjóð og að bankastarfsemi gæfi meira af sér en fiskveiðar.

Ef mikilvægi fjármálageirans umfram sjávarútveginn átti að vera rök fyrir því­ fyrir tveimur árum að við ættum að ganga í­ ESB – hlýtur þá ekki hið gagnstæða að gilda núna? Úr því­ að Ísland er aftur farið að snúast um fisk – eigum við þá ekki að láta þá hagsmunaaðila ráða þessu?