Á athugasemd við síðustu færslu vísar Stebbi Hagalín í söguburð um að James Caan, pakistanskur athafnamaður, ætli að kaupa Luton.
Það hefur verið dregið til baka.
En já – ég sagði pakistanskur kaupsýslumaður…
…sko… maðurinn sem hér um ræðir hét upphaflega Nazam Khan. En breytti nafni sínu í James Caan þegar hann fór út í bissnes, af því honum fannst James Caan svo flottur í Guðföðurnum.
Eiginlega er ég bara feginn að þessi maður ákvað að kaupa ekki Luton.