Hörmulegasta frétt helgarinnar

Það er ömurlegt að lesa um að í­slensku ABC barnaþorpin í­ Kenýa hafi þurft að ví­sa á brott börnum vegna þess að ræningjar hafi látið greipar sópa og að neyðarsjóðurinn hérna heima sé þurrausinn.

Af öllu því­ slæma sem getur gerst í­ kreppunni væri það allra versta ef hún yrði til þess að við getum ekki aðstoðað börn í­ fátækustu löndum jarðar.

Hvatning dagsins er því­ einföld – allir sem eiga þess nokkurn kost fari inn á heimabankann sinn og leggi inn á neyðarsjóð ABC, t.a.m. 5.000 krónur.

Reikningsnúmer: 1155-15-41411

Kennitala: 690688-1589

(Og það má svo alveg kvitta fyrir í­ athugasemdakerfinu hér að neðan – KOMA SVO!!!)