Gott skap

Það er langt sí­ðan ég hef lesið grein á pólití­sku vefriti sem hefur komið mér í­ verulega gott skap. Ég hins vegar búinn að skemmta mér konunglega yfir grein dagsins á Deiglunni. Hún byrjar á greinargóðu yfirliti yfir sögu í­slenskra mótmæla:

„Íslendingar hafa í­ gegnum tí­ðina ekki verið miklir mótmælendur í­ sér. Vissulega eru dæmi þess og má þar nefna hin afar ólí­ku tilfelli: Gúttóslaginn ’32, mótmæli vörubí­lstjóra nú á árinu og mótmæli Sambands ungra sjálfstæðismanna við aldurstakmörkunum á tjaldsvæðum Akraness í­ tengslum við írska daga á þessu ári. Gúttóslagurinn sneri að ofbeldisfullum mótmælum þegar lækka átti laun vegna atvinnubótavinnu og lágu fjölmargir lögreglumenn særðir eftir á. Mótmæli vörubí­lstjóra voru í­ tilefni hás bensí­nverðs og fóru aðallega fram með því­ móti að vörubí­lar tepptu umferð ví­ðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Mótmæli SUS fóru fram þannig að hópur ungra sjálfstæðismanna fór til Akranesbæjar, gáfu forseta bæjarstjórnar bol og lásu upp yfirlýsingu þar sem háttsemi bæjarstjórnar var hörmuð. Merkilegt nokk þá báru sí­ðastnefndu mótmælin skjótan árangur – án þess að neinn bæri skaða af.“

– Óborganlegt!

Næst bí­ð ég eftir samantekt Deiglunnar á sögu í­slenskra veislna og mannamóta. Það yrðu væntanlega: dansinn í­ Hruna, konungskoman 1907 & litlujólin hjá Heimdalli árið 2004, þegar Þórlindur lék jólasveininn og öll börnin dönsuðu í­ kringum hann.