Hver hefði trúað því miðað við stjóraferil Guðjóns Þórðarsonar síðustu misserin að hann ætti eftir að fá annað tækifæri í enska boltanum?
Crewe Alexandra er merkilegt lið sem nýtur talsverðrar virðingar á Bretlandseyjum. Félagið er frægt fyrir að hafa náð árangri umfram stærð, með því að sníða sér alltaf stakk eftir vexti og hegða sér skynsamlega í leikmannakaupum.
Fyrir vikið hefur Crewe í margra huga verið fyrirmynd margra minni liða – sönnun þess að það sé hægt að þrauka sem sardína innan um hákarlana.
Það verður því fylgst grannt með því hvernig Guðjóni tekst upp í nýja djobbinu. Ekki kúðra þessu – orðspor okkar er víst nógu slæmt fyrir í Englandi…