Ég er oft spurður hvort ég haldi ekki með einhverju liði í ensku úrvalsdeildinni – svona til hliðar við Luton.
Menn verða yfirleitt frekar tortryggnir þegar ég neita því.
Og raunar er það ekki alveg svo einfalt. Þessar vikurnar held ég t.d. með Middlesborough. Við erum nefnilega með fantagóðan senter í láni frá þeim – og því slappari sem Boro-menn eru, þeim mun meiri líkur eru að á kauði verði kallaður aftur heim.
Craddock skoraði einmitt fyrir okkur í dag í 2:2 jafntefli gegn Chesterfield á útivelli.
Jöfnunarmark okkar kom á 96. mínútu. Það skoraði fituhjassinn Ian Roper, sem hefur öðlast sérkennilegan cult-status meðal stuðningsmannanna.
Sex leikir í röð án taps er ekki slæmt – en þar af eru raunar fjögur jafntefli og einn sigur í skúnka-bikarkeppni. Nú verða einhverjir sigrar að fara að koma í hús.