Nú ræða spekingar um mikilvægi þess að stofna nýtt íslenskt lýðveldi – „annað lýðveldið“ – sem yrði allt öðruvísi og betra en hið fyrra. Gömlum ósiðum yrði kastað á ruslahauga sögunnar.
Þetta er gott og blessað – en mætti ég þó vara við því að þetta heiti verði fyrir valinu, reynslan sýnir nefnilega að það er koss dauðans. „2. lýðveldi“ sögunnar eru mörg og til flestra var stofnað með göfugum hugsjónum. Þau hafa hins vegar undantekningarlítið reynst skammlíf. Rifjum upp helstu dæmi:
* Frægast er vitaskuld 2. lýðveldið í Frakklandi. Það varð til eftir byltinguna 1848 en dó með Loðvík Napóleon.
* Næstfrægast er 2.lýðveldið á Spáni, sem stofnsett var 1931 eftir að einræðisherrann Rivera fór frá. Það var brotið niður af Francó og fasistasveitum hans.
* Á Póllandi var 2.lýðveldið við lýði á árunum milli heimsstyrjaldanna. Meira þarf ekki að segja.
* 2.lýðveldið í Suður-Kóreu varð skammvinnt. Það tók við af herforingjastjórn og var leitt af frjálslyndum stúdentum. Eftir fáeina mánuði 1960-61 var það á nýjan leik afnumið af herforingjum.
* Nígeríumenn áttu sitt 2.lýðveldi á árunum 1979-83. Íslenskir skreiðarsölumenn muna hvernig það fór.
* 2.lýðveldið á Filipseyjum var hálfgert leppríki Japana á lokaárum seinni heimsstyrjaldarinnar. Kunnasti leiðtogi þess var Benigno Aquino eldri – tengdafaðir corazon Aquino.
* Á Ghana þraukaði 2.lýðveldið í þrjú ár, frá 1969-72.
* 2.lýðveldið er sömuleiðis hugtak sem notað hefur verið um stöðuna í Tékkóslóvakíu frá innlimun Súdetahéraðanna til hernáms Þjóðverja í seinna stríði. Sumstaðar er líka talað um 2. slóvaska lýðveldið á tímum hernámsins.
* Stjórnmálaspekingar hafa talað um 2.lýðveldið á ítalíu frá 1992 til þessa dags. Það vísar ekki í neinar sérstakar stjórnkerfisbreytingar, heldur er það hugtak í pólitískum tilgangi sem átti að vísa í stórfellda siðbót ítalskra stjórmála… tveimur árum síðar tók Berlusconi við.
* Ætli eina dæmið um 2.lýðveldi sem tekist hefur að lifa e-ð sé ekki að finna í Austurríki frá því skömmu eftir stríðslok til þessa dags?
Með öðrum orðum – menn ættu að fara mjöööög varlega í að nota stimpilinn: „2. íslenska lýðveldið“.