Ég bjó í Edinborg 2000 til 2001 og veit vel að það er langt frá Edinborg til Reykjavíkur.
Miðað við nýjustu bloggfærslu Gísla Marteins Baldurssonar hefur leiðin þó lengst allnokkuð á þessum tæpa áratug sem liðinn er.
Gísli Marteinn virðist trúa því í alvörunni að reiði Samfylkingarfólks í garð stjórnarsamstarfsins sé angi af einhverjum innanflokkserjum hjá krötum – Össur vs. Ingibjörg.
Þetta fer á topp 5-listann yfir mestu veruleikafirringu netheima þennan mánuðinn.
# # # # # # # # # # # # #
Hér er athyglisverð tæknifélagsfræðileg rannsókn á MySpace, Facebook og eftirlitsþjóðfélaginu. Ekkert léttmeti.
# # # # # # # # # # # # #
Sky er búið að staðfesta að seinni leikur Luton og Brighton í undanúrslitunum málningarbikarnum verði í beinni útsendingu þriðjudaginn 17.feb. Því fagna allir góðir menn.
Fyrri leikurinn fór 0:0, svo möguleikarnir eru ágætir.