Ég man ekki nákvæmlega söguna af pólsku teppunum. Hún gerðist undir lok kalda stríðsins, þegar Pólland var mjög í heimsfréttunum fyrir slæmt stjórnarfar og kröpp kjör þegnanna. Bandaríkjamenn voru einhverju sinni að vanda um fyrir pólsku ríkisstjórninni – gott ef þeir buðu ekki fram aðstoð eða sendu neyðargögn.
Svar pólsku stjórnarinnar var á þá leið að senda teppi til Bandaríkjanna – til að útigangsfólk á götum bandarískra stórborga frysi ekki í hel.
Þessi saga rifjast upp þegar fréttir berast af ullarsöfnunarátaki Bylgjunnar fyrir breska ellilífeyrisþega.
Vissulega er framtakið gott og stórmannlegt… en ég legg samt til að Heimir Karlsson fái hér eftir viðurnefnið Jarúselskí!