Örugg sæti

DV-vefurinn flytur frétt af því­ að Agli Helgasyni hafi verið boðið „öruggt þingsæti“ fyrir Framsóknarflokkinn í­ komandi kosningum. Um það má lesa hér.

Eitthvað er skilningur blaðamannsins frábrugðinn mí­num skilningi á hugtakinu „öruggt sæti“ – því­ samkvæmt þessu átti Egill að sitja í­ efsta sæti í­ Rví­k-suður. Þar er Framsóknarflokkurinn ekki með mann inni. Hvernig getur það þá talist öruggt sæti?

Reyndar kemur sí­ðar í­ fréttinni fram að málskilningur blaðamannsins sérstakur, þar sem hann klykkir út með að málið sé „ekki til lykta leitt“ – en að niðurstaðan sé þó fengin…