Eiríkur Tómasson kallaði eftir því um helgina að kosið yrði til stjórnlagaþings samhliða þingkosningum í vor.
Fyrir því kunna að vera ýmis rök, s.s. sparnaðarrökin. Það er jú ódýrara að standa fyrir einum stórum kosningum en tvennum minni.
Á Eiríki var sömuleiðis að skilja að rétt væri að kjósa í hvelli á meðan stjórnarskrármálið væri enn heitt í umræðunni – sem eru langsóttari rök.
Veigamestu rök Eiríks Tómassonar fyrir að kjósa svo snemma var hins vegar sú að með því mætti komast fram hjá þeirri hættu að stjórnmálaflokkarnir beittu sér um of við valið á stjórnlagaþingið – væntanlega vegna þess að þeir væru uppteknir við annað.
Hér sýnist mér málunum vera rækilega snúið á haus. Ef við komumst að þeirri niðurstöðu að mikilvægt sé að hlutleysa stjórnmálaflokkanna sem mest í tengslum við stjórnlagaþingskosningar, til að tryggja möguleika einstakinga og áhugamannahópa, þá ættum við einmitt að velja ALLA AíRA tíma en rétt á meðan þing- eða sveitarstjórnarkosningar standa yfir.
* Þegar kosningabarátta til þings- og sveitarstjórna stendur hvað hæst, dynja á kjósendum kosningablöð og auglýsingar. Reynslan sýnir að meðan á því stendur er afar erfitt fyrir félög og einstaklinga að koma sínum málum á framfæri. Kosningabarátta til stjórnlagaþings sem háð er af vanefnum hlýtur að drukkna í baráttu fyrir þingkosningar.
* Dagblöðin fyllast af greinum fyrir þingkosningar. Biðtími aðsendra greina fram að birtingu verður óhemju langur og blöðin reyna að ryðja greinunum inn á vefsíður sínar. Lengri greinar eiga varla séns á að komast inn í kosningatíð og þeir komast helst á síður blaðsins sem þekkja til á ritstjórninni eða hafa freka kosningastjóra á sínu bandi.
* Sú hugmynd að flokkarnir gætu ekki beitt sér í stjórnlagaþingskosningum vegna anna við þingkosningar er sömuleiðis skrítin. Þvert á móti eru kosningavélar flokkanna EINMITT í fullum gangi á þessum tíma. Þarna eru skrifstofurnar virkastar, sjálfboðaliðarnir flestir og fundir á hverju kvöldi. Frambjóðendur til stjórnlagaþings með tengsl við flokka ættu aldrei auðveldara að fá aðstoð félaga sinna en einmitt í miðri kosningabaráttu. Ef kosið yrði til stjórnlagaþings á öðrum tíma yrði hins vegar mun meira áberandi ef kosningavélarnar færu eitthvað að reyna að rumska.