Á síðustu kosningum færðist þingmaður frá NV-kjördæmi til SV-kjördæmis. Kraginn er því með tólf þingsæti en NV með níu.
Þetta mun ekki breytast í komandi kosningum. Næsti maður inn verður aftur í SV-kjördæmi og NV er næst því að missa mann, en 2007 var hlutfallið þó innan marka laganna og því ekki ástæða til að breyta. (Hlutfallið var 2.347 í NV en 4.549 í SV – eða 1,938. Það má vera 2,0.)
En nú er kosið tveimur árum fyrr en til stóð og því athyglisvert að vita hvaða demógrafísku breytingar hafa átt sér stað? Megum við eiga von á því að þingmenn verði færðir milli kjördæma í þarnæstu kosningum (2013 eða fyrr)? Er ekki einhver glöggur lesandi sem getur reiknað þetta? Geta íbúar NV vænst þess að halda níunda þingmanninum núna?