Á kvöld verða sjónvarpsumræður flokksformannanna. Samkvæmt öllum kosningafræðum er það mikilvægasti áfangi kosningabaráttunnar. Þar eigi úrslitin að geta ráðist.
Samt gerist það aldrei. Einhvern veginn verður formannaþátturinn alltaf vonbrigði og niðurstaðan hálfgert jafntefli. Þetta er þáttur sem er eiginlega vonlaust að vinna – en mögulega hægt að tapa.
En ég velti því fyrir mér hver verði fulltrúi Borgarahreyfingarinnar? Þegar hún kom fram var Herbert Sveinbjörnsson titlaður formaður hennar og fyrsta kastið gnæfði andlitsmynd af honum yfir heimasíðu O-listans.
Eftir landsfundahelgi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sendi Borgarahreyfingin hins vegar frá sér yfirlýsingu þess efnis að þar væru enginn formaður eða aðrar slíkar vegtyllur. Tveimur dögum síðar var listinn yfir stjórnarmenn horfinn af heimasíðunni.
ístþór Magnússon hefur þakkað sér þessa ákvörðun Borgarahreyfingarinnar. Hann telur að Herbert hafi verið lækkaður í tign, eftir að ístþór afhjúpaði að hann væri að sinna framboðsmálum í vinnutíma sínum… (Leyfi mér reyndar að draga þessa kenningu ístþórs í efa.)
Á Fréttablaðinu í morgun verður Herbert hins vegar aftur fyrir svörum sem flokksforingi – og er nú titlaður formaður stjórnar Borgarahreyfingarinnar.
Það væri reyndar gott að fá að vita, hver væntanlegra þingmanna Borgarahreyfingarinnar muni taka við stjórnarmyndunarumboði ef sú staða kæmi upp eftir kosningar? Verður það Herbert, Þráinn, Birgitta eða einhver annar? Kannski þátturinn í kvöld gefi vísbendingar um það.