Þegar ég var smápjakkur og hlustaði sem mest á Bubba – þá hefði þurft að segja mér það tvisvar að rokkkóngurinn ætti eftir að leika í bílaauglýsingum og kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
En það hefði svo sem líka þurft að segja mér það tvisvar að Billy Idol ætti eftir að senda frá sér jólaplötu með lögum á borð við Heims um ból og Jólasveinninn kemur í kvöld!