Skætingur

Efnileg ritdeila virðist hafa verið kæfð í fæðingu.

Hannes Hólmsteinn sendi Karli Th. Birgissyni þetta skeyti í morgun og skoraði á hann benda á dæmi um að Hannes hefði fullyrt að Samfylkingin væri fjármögnuð af Baugi.

Karl Th. svarar með skætingi og þykist misskilja spurninguna – lætur eins og Hannes hafi beðið um tæmandi úttekt á brigslyrðum prófessorsins.

Þetta er aumt.

Ef menn ætla að lyppast niður í rökræðum við fyrstu athugasemd andstæðingsins, þá er skárra að játa sig sigraðan með reisn.

Assgoti er samt úrklippusafnið hjá krötunum lélegt ef þeir geta ekki á svipstundu grafið upp amk eina grein eftir Hannes Hólmstein með glannalegum fullyrðingum um Baug og Samfylkinguna…