Þjóðaratkvæðagreiðsla Stefáns

Þjóðaratkvæðagreiðslur eru í tísku um þessar mundir. Því hef ég ákveðið að efna til lítillar þjóðaratkvæðagreiðslu hér í athugasemdakerfinu.

Nú fór ég síðast í klippingu í ágúst á síðasta ári og hárlubbinn því meiri og þéttari en nokkru sinni fyrr. Frá því í nóvember hef ég svo verið með alskegg sem minnir helst á óðan dómsdagsspámann.

Fyrir vikið er sú spurning orðin nokkuð áleitin hvort ég ætti ekki að láta klippa mig og raka? Þessi spurning er hér með sett undir dóm þjóðarinnar. Vinsamlegast greiðið atkvæði í athugasemdakerfinu (brandarar um bréflega kosningu og utankjörfundaratkvæði afþakkaðir).