Stór dagur hjá Ólínu í dag. Fyrsta gönguferðin um hverfið í barnavagninum. Reyndar létt litli gríslingurinn sér fátt um finnast, en ég var þeim mun kátari. Sé núna fram á að komast undir bert loft á hverjum degi og aukna hreyfingu.
Reyndar takmarkaði það nokkuð göngutúrinn að reykjarmökkur lá yfir Norðurmýrinni. Kviknaði í risíbúð á Rauðarárstíg. Það skíðlogaði og eflaust miklar skemmdir orðið á húsinu. Þeir íbúar í hverfinu sem ekki voru heima til að loka gluggum mega væntanlega venja sig við reykjarlykt innandyra á næstunni.
# # # # # # # # # # # # # #
Allir góðir menn fagna frammistöðu Moldava í söngvakeppninni í gær.
Íslendingar munu þó væntanlega setja Norðmenn og Dani í tvö efstu sætin á morgun. Gísla Marteini mun ekki finnast neitt athugavert við það, en bölsótast þeim mun meira yfir meintu Balkanþjóða-samsæri.
# # # # # # # # # # # # # #
Lét plata mig út í að halda fyrirlestur um Leonardo da Vinci á sunnudaginn, á afmæli Leonardo-áætlunarinnar.
Það mun kalla á samningu fram eftir nóttu.
Kunna menn einhverjar hnyttnar Leonardó-sögur fyrir mig, til að krydda erindið?