Gallinn við að ráðast í viðgerðir er sá að sjaldnast er nóg að færa það skemmda eða ónýta í fyrra horf – litlar viðgerðir kalla á stærri endurbætur, sem ella hefðu ekki verið efst á dagskránni.
Bruninn á Mánagötunni er dæmi um þetta. Skemmdirnar í eldhúsinu kalla á viðgerðir, en einhvern veginn væri fáránlegt að færa allt í sama horf. ísskápurinn er ónýtur og eldavélin líka. Bæði tækin voru einkar mjó, til að hægt væri að koma þeim inn í þrönga innréttingu. Nú er innréttingin skemmd að talsverðu leyti – en það væri fráleitt að reyna að endurgera hana í upprunalegri mynd.
Ég hef lengi klórað mér í kollinum yfir því hvernig hægt væri að stækka eldhúsið. Flestar hugmyndirnar hafa gengið út á að opna það sem mest fram á ganginn, sem væri engan veginn gallalaus framkvæmd.
Á marga mánuði hef ég verið fastur í því að einu stækkunarmöguleikarnir væru fram á gang og allar mínar pælingar hafa miðast að því. Nú hefur Kiddi, móðurbróðir Steinunnar hins vegar komið nýrri hugmynd inn í kollinn á mér – hvað með að stækka eldhúsið inn í svefnherbergið í staðinn? Með því að taka 2-3 fermetra af svefnherberginu mætti búa til þetta fínasta eldhús, án þess að það yrði neitt teljandi þrengra um okkur í svefnherberginu. Um leið og bent hefur verið á lausnina virðist hún svo einföld og augljós…
Verst er að gömlu eru í sumarfríi á Færeyjum og Hjaltlandseyjum um þessar mundir og ég mun líklega þurfa að taka ákvörðun – af eða á – áður en þau snúa aftur. Það er lakara, þar sem ég notast yfirleitt við pabba sem helsta ráðgjafa í svona málum.
# # # # # # # # # # # # #
Vinna Íslendingar Möltu á miðvikudaginn? Fjandakornið, ég er ekki viss. Hvenær urðum við eiginlega svona slappir?
# # # # # # # # # # # # #
Síðdegis fór ég á góðan fund í húsakaupanefnd SHA. Svo virðist sem markaðurinn fyrir lítið, ódýrt skrifstofu/verslunarhúsnæði í 101 sé aðeins að glæðast – eftir að hafa verið ákaflega dapur í marga mánuði. Vonandi fer eitthvað að gerast núna af viti.
# # # # # # # # # # # # #
Á kvöld las ég utan á stykki af Konsúm-súkkulaði, sem er einmitt besta suðusúkkulaði í heimi.
Konsúm-súkkulaði er svalasta vara sem ég hef séð lengi. Á umbúðunum eru nefnilega ekki „notkunarleiðbeiningar“ heldur „notkunarREGLUR“. Hver skyldu viðurlögin vera við brotum á þessum reglum?
# # # # # # # # # # # # #
Ef marka má leiðbeiningarnar (nota bene, leiðbeiningarnar – ekki reglurnar) utan á SMA-mjólkurduftsdósinni, innbyrðir gríslingurinn miklu meira en gert er ráð fyrir. Spurningin er: miðast leiðbeiningarnar við bandarískar horrenglur frekar en pattaralega íslenska krakka eða er barnið með lotugræðgi (hún á það til að kasta upp eftir máltíðir)?