Á kvöld leit ég á Víkingsvöllinn. Þar fer Raggi Kristins fyrir Bersekrjum, stuðningsmannaklúbbi Víkinga. Hitti ýmsa mæta menn, þar á meðal Atla Gísla og Frikka son hans. Atli bauð mér upp á kaffi og reyndi að stríða mér á Íslandsmeistaratitli Víkinga 1991. Ég er ónæmur fyrir því. Hef alltaf getað unað Víkingum þessa titils og það er við okkur sjálfa að sakast að FRAM hafi ekki unnið neitt síðan.
Það er greinilega mikið stuð í kringum félagið og menn eru að gera mjög góða hluti varðandi alla umgjörð. Víkingar eru mínir menn í 1.deildinni.
Á spjalli manna eftir leik var góður rómur gerður að þeirri hugmynd að sameina FRAM og Víking. Liðið myndi vitaskuld heita Reykjavík 1908, enda bæði félög stofnuð það ár. Búningurinn? Tja, Inter-treyjan? Blá- og svartröndótt.
Sík sameining hugnast mér í það minnsta betur en hugmyndir um að FRAM og þrælarnir í Þrótti rugli saman reytum sínum. (Á „reytum“ ekki örugglega að vera með ypsiloni?)