Smáauglýsingar

Stefnt er að því­ að flytja inn á Mánagötuna um næstu helgi eða þar um bil. Við feðgarnir höfum staðið í­ málningarsnatti og senn förum við að geta tekið aftur við hlutum búslóðarinnar, sem hefur verið í­ reykhreinsun úti í­ bæ.

Þar sem útilokað er að fá iðnaðarmenn um þessar mundir, þurfum við hins vegar að útbúa bráðabirgðaeldhús. Vaskurinn lafir enn, en auk hans þurfum við að kaupa í­sskáp sem sí­ðar fellur inn í­ endanlega eldhúsinnréttingu. Þá er eftir vandamálið með eldavélina.

Til að þurfa ekki að lifa á samlokum og jógúrti (auk þess að nauðsynlegt er að sjóða pela barnsins) þurfum við lágmarkseldunaraðstöðu.

Og þar komið þið inn í­ dæmið – kæru lesendur þessarar bloggsí­ðu!

Á einhver hraðsuðuhellur, helst borð með tveimur hellum, til að lána okkur um óákveðinn tí­ma (lí­klega framyfir miðjan ágúst)? Ég tí­mi því­ fjandakornið ekki að kaupa svona græju fyrir ekki lengri tí­ma en þetta.

Svör óskast í­ athugasemdakerfið.

# # # # # # # # # # # # #

Ofboðslega munar miklu í­ verði á í­skápum eftir því­ hvort þeir eru úr áli, stáli eða plasti. Kælibúnaðurinn er sá sami, þannig að maður áttar sig ekki alveg á því­ í­ hverju munurinn liggur. Veit eitthvert heimilistækjanördið hvort stálí­skápar séu svona miklu betri en t.d. plastí­skápar?

# # # # # # # # # # # # #

Ég furða mig á Völsurum. Núna er rosalegur uppgangur hjá félaginu, stórframkvæmdir framundan og velgengni á vellinum. Engu að sí­ður virðist félagið ekkert gera til að láta á sér bera í­ Norðurmýrinni. Þróttarar bera leikskrá fyrir helstu heimaleiki sí­na í­ hús í­ hverfinu, en ég minnist þess ekki að hafa séð neitt frá Völsurum.

Það er reyndar mjög metnaðarfullt hjá Þrótturum að gera tilkall til Norðurmýrarinnar – hverfis sem liggur mun nær bæði Val og Fram.

# # # # # # # # # # # # #

Breska fyrirburamyndin er endursýnd í­ Sjónvarpinu í­ kvöld. Hún var áður á dagskrá þegar Steinunn var að komast á steypinn. Lí­klega myndi ég betur höndla á þessa mynd núna en þá. Ætla samt ekki að taka sénsinn.

# # # # # # # # # # # # #

Steve Howard aðalmarkaskorari Luton samdi á nýjan leik við félagið fyrir helgi. Því­ fagna allir stuðningsmenn. Lí­klega mun hópurinn ekki stækka svo neinu nemi fyrir átök vetrarins. Á næstu viku verður kynnt leikjaplanið. Hver veit nema að maður skoði það gaumgæfilega með tilliti til þess hvort raunhæft sé að skella sér á einhvern stórleikinn?

Kannski ég reyni að draga nafna minn Hagalí­n á Luton – QPR?

# # # # # # # # # # # # #

Það virðist hafa rignt rækilega á gesti á Þingvöllum í­ dag. Við feðgarnir stóðum í­ málningarvinnu og fórum því­ hvergi. Steinunn var eitthvað að spá í­ að skella sér, en heyktist á því­ – sumpart vegna veðursins og sumpart vegna þess að hún er enn ekki búin að fyrirgefa Viggu Finnboga fyrir Kastljósþáttinn á dögunum þar sem hún ÞAKKAíI körlum fyrir að hafa gefið konum kosningaréttinn fyrir 90 árum.

Konur skulda körlum engar þakkir fyrir það mál. Sjálfur hef ég lengi talið koma til greina að svipta karlmenn kosningarétti í­ eins og nokkrar aldir til að jafna reikningana. Vissulega væri það ekki lýðræðisleg aðgerð en lí­klega happadrjúg – enda hafa konur undantekningarlí­tið betri skoðanir í­ stjórnmálum en karlar ef marka má skoðanakannanir.

# # # # # # # # # # # # #

Ekkert efstu deildarlið fallið út úr bikarkeppninni ennþá. Reikna með að þau fari öll tí­u í­ næstu umferð.

Hvaða mótherja vil ég fá þar? Tja, það væri ekki slæmt að fá útileik gegn KR. Það gefur mest í­ kassann (er ekki örugglega deilt aðgangseyrinum í­ bikarkeppninni?) Sigurleikir okkar í­ Frostaskjólinu hafa helst komið í­ bikarnum og mig þyrstir í­ hefndir eftir tapið í­ 2. umferðinni.

KR úti er því­ efst á óskalistanum. Njarðví­k heima þar á eftir…