Afríski boltinn

Ég steingleymdi að blogga um úrslitin í­ HM-forkeppninni í­ Afrí­ku um helgina. Þar var mikið af stórmerkilegum úrslitum og skyndilega von á óvæntum og spennandi sigurvegurum í­ flestum riðlum.

1. riðill:

Senegal gat komið sér á topp riðilsins og langleiðina í­ úrslitakeppnina með því­ að sigra Togo á heimavelli. Úrslitin urðu hins vegar 2:2 jafntefli.

Staðan þegar tvær umferðir eru eftir, er því­ þessi:

Togo 17 stig
Zambí­a 16 stig
Senegal 15 stig

Togo má ljúka keppni með jafn mörg stig og hvort hinna liðanna, vegna hagstæðari innbyrðisúrslita. Á septemberbyrjun heldur Togo til Malí­, meðan Zambí­a og Senegal mætast. Um miðjan október tekur Togo svo á móti Lí­berí­u. Möguleikarnir á stórkostlega óvæntum úrslitum í­ þessum riðli eru því­ miklir.

2. riðill

Ghana gerði góða ferð til Suður-Afrí­ku og fór þaðan með öll stigin og skyndilega eru vonir Suður-Afrí­kumanna um HM-þátttöku í­ uppnámi. Tvær umferðir eru eftir og bæði lið hafa 15 stig, en Ghana betra innbyrðisleikjahlutfall.

Næst mætir Ghana liði Úganda á heimavelli og heldur svo til Grænhöfðaeyja. Það er afar viðráðanlegt verkefni og Suður-Afrí­ka mun væntanlega sitja heima – sem mun valda miklum titringi innan FIFA, enda væri fjarvera gestgjafa HM 2010 áfall fyrir sambandið. Ekki vera hissa þótt reynt yrði að ví­sa Ghana úr keppni lí­kt og gert var við Mexí­kó fyrir HM 1990 til að koma Bandarí­kjamönnum til ítalí­u.

3. riðill:

Fí­labeinsströndin stóð í­ lappirnar gegn Egyptum á heimavelli. Egyptar eru því­ úr leik, ígústi Flygenring (sí­ðbúnum knattspyrnuunnanda) til sárrar armæðu. Staðan er þessi:

Fí­labeinsströndin 19 stig
Kamerún 17 stig

Næst mætast Fí­labeinsströndin og Kamerún. Á lokaumferðinni fara Fí­labeinsstrandarmenn til Súdan, sem er enn án sigurs. Með öðrum orðum – jafntefli á heimavelli nálega tryggir Fí­labeinsströndinni afar óvæntan farseðil til Þýskalands. Það yrði áfall fyrir Kamerún.

4. riðill:

Stórtí­ðindi ársins í­ afrí­ska boltanum eru hér í­ uppsiglingu! Angóla náði jafntefli á útivelli gegn liði Ní­gerí­u og er í­ góðum málum. Staðan:

Angóla 15 stig
Ní­gerí­a 15 stig

Þar sem Angóla hefur betur í­ innbyrðisviðureignum dugar þessu strí­ðshrjáða landi að fá jafnmörg stig úr lokaleikjunum og Ní­gerí­a. Það ætti ekki að vera svo erfitt því­ Angóla á eftir heimaleik gegn miðlungssterku liði Gabon og útileik gegn botnliði Rwanda. Ní­gerí­a á hins vegar útileik gegn Alsí­r og heimaleik gegn Zimbabwe sem öllum að óvörum er í­ þriðja sæti riðilsins með 12 stig. Það eru ekki litlar fréttir.

5. riðill:

Túnis stendur vel að ví­gi í­ þessum riðli:

Marokkó 8 leikir 16 stig
Túnis 7 leikir 14 stig

Túnis á sem sagt leik til góða, heima gegn Kenýa um miðjan ágúst. Því­ næst mætast liðin aftur í­ Nairobi og á sama tí­ma tekur Marokkó á móti Botswana. Loks mætast Túnis og Marokkó í­ Túnisborg. Fyrirfram er Túnis því­ í­ góðri stöðu, en mega ekki misstí­ga sig í­ næstu leikjum.

– Er ég fótboltanörd? Nei – ég er fótboltanördIí!