Rafvirki í hús

Þá er búið að semja við rafvirkja um að taka að sér rafmagnsmálin í­ eldhúsinu á Mánagötu. Þar er þungu fargi af mér létt.

Um leið og rafvirkinn hefur lokið sér af, gæti múrari tekið til starfa. Þá er bara að hafa upp á einum slí­kum.

# # # # # # # # # # # # #

Á kvöld keppa Ví­kingur og KR á Ví­kingsvelli í­ bikarnum. Á sama tí­ma verð ég í­ kvöldmat hjá tengdó í­ Kjarrhólmanum. Þar slæ ég tvær flugur í­ einu höggi, því­ völlurinn blasir við út um stofugluggann hjá henni. Verst er að annað markið er hulið trjám frá einhverri gróðrastöð í­ Mörkinni. Skyldi enginn knattspyrnuunnandi í­ Kjarrhólmanum hafa í­hugað að fara með koparnagla að næturlagi og reka á kaf í­ hæstu og laufskrúðugustu trén?