Grapevine kynnir til sögunnar „fyrstu íslensku ofurhetjuna“, sem er einhvers konar blanda af manni og lunda. Ekki galin hugmynd – en fráleitt jafn frumleg og útgefendur vilja ætla.
Kafteinn Ísland, sem Kjarnó skrifaði nokkrar bækur um, er hin eina sanna fyrsta íslenska ofurhetja. Hann byrjaði sem aukapersóna í Svínharði Smásál í Þjóðviljanum, en tók síðar að lifa sjálftæðu lífi. Þessar sögur bera af í íslensku skrípó-i, ásamt Siggu Viggu að sjálfsögðu.
# # # # # # # # # # # # #
Það næst ekki í mig í síma fyrr en undir lok vikunnar. Ég tapaði símanum í Vestmannaeyjum, en hann er víst kominn í leitirnar og verður sendur upp á fastalandið með Íslandspósti. Fram að því er ég ónýtur maður.
Hef annars varla orku í að blogga um Eyjaferðina. Við vorum veðurtepptir, holdvotir og enduðum á að taka dallinn heim morguninn eftir. Og verst var að helv. leikurinn tapaðist.
# # # # # # # # # # # # #
Luton-menn leggja nú af stað til Búlgaríu til að taka þátt í æfingamóti í Sofiu ásamt tveimur búlgörskum félögum og einu kýpversku. Undirbúningstímabilið er því formlega að byrja.