íþróttafélag stúdenta er skringilegt íþróttafélag. Það keppir einungis í körfubolta og blaki. Minnir að íS hafi verið með í handboltanum í gamla daga, en það gæti verið misminni. Held að íS hafi aldrei haldið úti knattspyrnuliði og um einstaklingsíþróttir getur varla verið að ræða.
Þegar ég var í Háskólanum gengu alltaf miklar tröllasögur af meintum fjárstuðningi skólans við íS. Held að þær hafi allar verið orðum auknar. Helst að Happdræti Háskólans hafi verið duglegt við að auglýsa á treyjum liðanna. Varla hefur félagið heldur mikið gagn af skólanum í húsnæðismálum, því íþróttahús Háskólans býður tæplega upp á mikla körfubolta- eða blakiðkun.
Vita lesendur þessarar síðu eitthvað meira um íþróttafélag stúdenta? Hvernig er tengslunum við HÁ nákvæmlega háttað? Eru þau ekki fremur í orði en á borði? Er íS lífvænlegt félag eða er það á fallanda fæti? T.d. hefur karlaliðið í körfunni ekki verið í efstu deild í áraraðir. Þurfa iðkendur að vera stúdentar – eru einhverjar reglur um slíkt?
íS er sömuleiðis skringilegt íþróttafélag að því leyti að það heldur ekki út neinu yngri flokka starfi (eins og gefur raunar að skilja). Fyrir undirmálsíþróttagreinar eins og blakið hlýtur það því að teljast ansi blóðugt að eytt sé mikilli orku og fjármunum í að halda úti sterkum meistaraflokkum án þess að það gagnist á nokkurn hátt til uppeldis á yngri iðkendum.
Á ljósi þessa kviknar hugmynd hjá mér sem FRAMara. Hvernig væri að sameina FRAM og íS? FRAM hefur hvorki blakdeild né körfuboltadeild um þessar mundir. Þegar félagið flytur í hlíðar Úlfarsfells mun húsrými snaraukast og því auðveldlega hægt að bæta við nýjum innanhúsgreinum.
ívinningurinn fyrir FRAM væri að fá inn stönduga meistaraflokka með hefð og sögu, sem aftur gætu lagt grunninn að yngriflokkastarfi miklu hraðar en ella.
ívinningurinn fyrir íS væri að innan hefðbundins íþróttafélags væru félagsmenn mun velkomnari en nú er innan Háskólans, auk þess sem forsendur væru fyrir yngri flokkum. Á mínum huga er það nokkur mælikvarði á það hvort íþróttafélög eru „alvöru“ – að þau haldi úti einhverju barna- og unglingastarfi.
Er þetta ekki málið? Sameining FRAM og íS – það er í það minnsta lífvænlegri sameiningartillaga en nokkuð það sem félagsmálaráðuneytið gæti látið sér detta í hug.