Orkujarlinn 2005, 3. umferð, fyrsta vísbending

Leikar æsast í­ Orkujarlinum 2005. Staðan eftir tvær umferðir af átján er þessi:

Jóhanna Helgadóttir 3 stig
Hilmar Hilmarsson 1 stig
Aðrir 0 stig

Hugum þá að þriðju umferð.

Spurt er um erlent fyrirtæki.

Fyrirtækið ber nafn verkfræðings og iðnjöfurs sem er löngu látinn. Fyrirtækið er nátengt sögu í­slenska orkukerfisins, einkum þó virkjunum á Austurlandi.

Hvert er fyrirtækið?

# # # # # # # # # # # # #

Á morgun mæta allir góðir menn í­ Þjóðminjasafnið í­ hádeginu og hlýða á Sigurð Gylfa flytja fyrirlestur um kynlí­f, nývæðingu og framfarir. Undirritaður sér um fundarstjórn.

Ójá.