Þrír hafa fengið stig úr þremur fyrstu umferðum Orkujarlsins. Staðan er þessi:
Jóhanna Helgadóttir 3
Örn Úlfar Sævarsson 2
Hilmar Hilmarsson 1
Minnt er á, af gefnu tilefni, að óheimilt er að giska oftar en einu sinni við hverja vísbendingu.
Fjórða spurning er um frumkvöðul úr orkusögunni.
Maður þessi er eitt af stóru nöfnunum í sögu orkumála í heiminum. Sonur hans tók við starfi hans, en sneri sér jafnframt að stjórnmálum og var myrtur af hægriöfgamönnum.
Hver er frumkvöðullinn?