Orkujarlinn 2005, 13. umferð, fyrsta vísbending

Skjótt skipast veður í­ lofti. Á næstsí­ðustu umferð var Snæbjörn mí­nútu frá því­ að taka forystu í­ keppninni en nú hefur Gí­sli náð góðu forskoti. Staðan er:

8 stig Gí­sli ísgeirsson
5 stig Snæbjörn Guðmundsson
3 stig Jóhanna Helgadóttir
3 stig Nanna Rögnvaldardóttir
3 stig Þorbjörn Rúnarsson
3 stig Andrés Ingi Jónsson
2 stig Örn Úlfar Sævarsson
2 stig Sigurður Magnússon
1 stig Hilmar Hilmarsson

Hugum þá að þrettándu spurningu. Spurt er um örnefni.

Örnefni þetta tengist í­slenskri orkusögu á fyrstu áratugum tuttugustu aldar, þar á meðal merkum rannsóknum.

Ætla mætti að heiti þetta ví­saði á einhvern hátt til útlendinga, en sú mun þó ekki vera raunin.

Hvert er örnefnið?