Manntafl

ManntaflFórum í­ leikhúsið í­ gær á einleikinn manntafl. Flott sýning og margir í­ salnum, þótt auglýst hafi verið að sýningum sé að ljúka. Manntafl er besta smásaga sem ég hef lesið. Þótt mörg ár séu liðin frá því­ ég renndi í­ gegnum hana, fannst mér ég muna hana í­ smáatriðum, eins og ég væri með handritið í­ kjöltunni. Mæli með Manntafli í­ Borgarleikhúsinu.

# # # # # # # # # #

Kennslan byrjar í­ ví­sindasögunámskeiðinu kl. 16:05 í­ dag. Við verðum í­ VR II, stofu 139. Vonandi mæta sem flestir.