Framkvæmdir

VinnaÞað er heljarstór gámur nokkrum húsum neðar í­ Mánagötunni, fullur af steypubrotum og spýtnabraki. Sé að þar hafa menn m.a. lent í­ að ryðja út forskalaðri eldhúsinnréttingu lí­kt og þeirri sem ég þurfti að brjóta niður hjá okkur í­ sumar. Það var ljóta helví­tið.

Ræddi við nágranna um framkvæmdirnar og hann upplýsti að sami aðili hafi keypt kjallarann og tvær efri hæðirnar. Hæðunum tveimur verði svo breytt í­ eina í­búð, þar sem neðri hæðin fari undir stofur og eldhús en sú efri í­ svefnherbergi og flennistórt bað.

Þetta er ekki fyrsta húsið í­ Norðurmýrinni norðan Flókagötu sem þetta er gert við. Annað hús neðar í­ götunni fékk slí­ka meðhöndlun á dögunum og ég hef séð fleiri dæmi um stórtækar framkvæmdir á fleiri en einni hæð í­ húsum í­ hverfinu.

Ætli það megi ekki reikna með að kostnaður við kaup á tveimur hæðum í­ svona húsi, niðurrif og framkvæmdir liggi ekki nærri 50 milljónum miðað við verðlag í­ dag. Það er á við dálaglegt einbýlishús í­ Grafarvoginum. Ætli það hefði ekki þurft að segja mönnum það tvisvar fyrir einhverjum árum að fólk með slí­k auraráð kysi sér búsetu í­ Norðurmýrinni…

# # # # # # # # # # # # # #

Luton og Úlfarnir leika í­ beinni útsendingu á Sky á föstudagskvöldið. Við erum bara alltaf í­ sjónvarpinu!

# # # # # # # # # # # # # #

Fréttaflutningurinn af heilsu Sharons er orðinn hreinn brandari.

Auðvitað var eðlilegt að fjölmiðlar veltu sér upp úr því­ þegar karlinn fékk stóra heilablóðfallið – enda maðurinn forsætisráðherra í­ veigamiklu rí­ki. Þá strax varð ljóst að hann ætti aldrei aftur kost á endurkomu í­ pólití­k OG ÞAí VORU FRÉTTIRNAR. Þegar þær upplýsingar lágu fyrir, áttu menn að hætta að velta sér upp úr ástandi karlsins og spá þess í­ stað í­ framhaldinu – mögulegum arftökum.

Það hvort Sharon tórir í­ viku eða nær einhverjum bata og lifir á hjúkrunarhæli í­ áratug í­ viðbót skiptir hins vegar engu máli pólití­skt. ísraelsk stjórnmál eru sem betur fer á hærra plani en Vatí­kanið að þessu leyti – að algjör hjarta- og heiladauði er ekki forsenda þess að menn fái að hætta störfum.

Næstu frétt, takk!