Vín og skel

Á gær fórum við Steinunn á veitingastaðinn Ví­n og skel, sem starfræktur er í­ bakhúsi fyrir aftan húsið Von á Laugaveginum. Kann einhver skýringu á því­ sérkennilega húsanafni?

Við átum afragðshumar og drukkum suður-afrí­skt ví­n með. Merkilegt hvað það ætlar að taka langan tí­ma að læra að núna er í­ lagi að kaupa suður-afrí­skar vörur eftir viðskiptabannið forðum tí­ð…

Eina sem hægt er að kvarta yfir er að matseðillinn er krí­taður á stóra töflu sem erfitt er að rýna í­. Það er t.d. ekki auðvelt að velja ví­n út frá slí­kum lista.

Ekki ódýrasti staðurinn í­ borginni, en óhætt að mæla með honum.

# # # # # # # # # # # # #

Vegna humarátsins missti ég af tveimur seinni viðureignum gærkvöldsins í­ GB. MK og MA virðast ekki hafa staðið fyllilega undir væntingum, en munu örugglega braggast milli umferða. Þau mætast reyndar í­ stórleik 16-liða úrslita og lí­klega einu viðureigninni þar sem úrslitin eru ekki nokkurn veginn ráðin fyrirfram.

Eitt verð ég þó að gagnrýna hjá mí­num gömlu félögum í­ útvarpinu. Það er sú regla að ef keppandi segir pass, sé ekki hægt að skjóta inn réttu svari áður en byrjað sé á næstu spurningu.

Þetta er breyting á því­ sem áður var. Gamla reglan var sú að pass teldist EKKI vera svar, heldur beiðni um að fá næstu spurningu, ef keppandi náði að skjóta inn réttu svari ííUR en spyrill byrjaði á næstu spurningu þá fékkst stig. Sama gilti ef svarað var á sama tí­ma og annar liðsmaður sagði pass.

Á sama hátt hefur sá háttur verið hafður á sí­ðustu árin að ef keppandi svaraði rangt en félagi hans náði að leiðrétta svarið áður en spyrill sagði „rangt“, þá ýmist gilti rétta svarið eða spyrillinn spurði: „hvert er svarið?“

Með öðrum orðum: réttu svörin voru látin njóta vafans. (Ekki ósvipað og í­ fótboltanum þar sem sóknarmaðurinn er látinn njóta vafans í­ dómgæslunni.)

Núverandi reglur ganga í­ hina áttina, þar sem röngu svörin eða pössin eru látin hafa forgang. Það þýðir lægra stigaskor – og það sem meira máli skiptir, eykur lí­kur á að vafaatriði eða deilumál komi upp.

Þetta kerfi hefur áður verið notað í­ Gettu betur, til dæmis árið 1995. Það reyndist ekki vel þá, enda gátu þá komið upp deilur um það hvort rétt svar eða pass hefðu komið á undan þegar liðsmenn hrópuðu hver ofan í­ annan.

Á ljósi þessarar slæmu reynslu er ég mjög undrandi að ákveðið hafi verið að breyta þessum reglum. Ég myndi hvetja Önnu Kristí­nu dómara, Andrés Indriðason eða stýrihóp framhaldsskólanna að í­huga alvarlega að breyta þessu – ef ekki strax fyrir næstu umferð, þá áður en að sjónvarpskeppninni kemur.