Skýringin fundin

020206_4.jpgÓlí­na hefur slefað óvenjumikið í­ dag. Raunar svo mikið að bolurinn hennar varð gegnsósa. íðan, þegar Steinunn var að svæfa barnið kom skýringin:

Fyrsta tönnin er að gæjast upp úr neðri skoltinum. Ekki seinna vænna kannski – barnið orðið 9 og 1/2 mánaðar gamalt.

Annars var nú alltaf upphaflega planið að láta vellrí­kt skyldmenni finna fyrstu tönnina og fá skrilljónir í­ tannfé. Alltaf þarf maður að klúðra svona plottum.