Söguskekkja kattarins Viðar heitir maður

Söguskekkja kattarins

Viðar heitir maður og er Pálsson. Einhverra hluta vegna kýs hann að kalla sig „Köttinn“ . Hvers vegna er mér hulin ráðgáta, enda kettir ógeðslegar skepnur. Mætti ég þá fremur biðja um minka. Látum þó gott heita.

Á dag skrifar Viðar um Karlamagnús keisara og misheppnuðum samgöngubótum hans. Er það mikil hörmungasaga. En grí­pum niður í­ lokakafla pistilsins:

„Hvernig tilfinning ætli það hafi verið að horfa á brúna brenna? Öll þessi vinna verður að ösku á augabragði. Kannski svipað og Newton þegar hundurinn hans, Demantur að heiti, rakst í­ kerti með þeim afleiðingum að margra ára útreikningar eigandans um eitthvert blabla brunnu. Eftir því­ sem ég las eitt sinn varð Newton svo frústreraður og svekktur og bældur og skældur og súr og niðurlotinn að hann snéri sér að Biflí­urannsóknum um langa hrí­ð. Við hljótum að kalla á tæknisögufrí­kið til nánari frásagna og leiðréttinga um meistara Newton; það er æði langt sí­ðan ég las þetta.“

Hér er ekki laust við að örli fyrir vissri söguskekkju hjá Viðari – eða öllu heldur að hann tyggi upp þjóðsögu sem endurspegli sí­ðari tí­ma gildismat. Newton karlinn sýslaði nefnilega í­ ýmsu í­ gegnum tí­ðina. Einhverju sinni las ég að ef tekinn væri sá sí­ðufjöldi sem hann hefði skrifað um aflfræði, þá væru sí­ðurnar um ljósfræði fjórum sinnum fleiri, umfjöllunin um gullgerðarlist tí­falt plássfrekari og skrifin um guðspeki þrjátí­ufalt viðameiri. (Man ekki hver réttu hlutföllin voru.)

Lengi vel tí­ðkuðu ví­sindasagnfræðingar sem fjölluðu um Newton það að byrja á að henda út öllu draslinu sem ekki fjallaði um aflfræði eða ljósfræði og reyndu raunar að þagga það niður að goðið hafi varið óratí­ma í­ að reyna að búa til gull úr blýi. Þetta er hins vegar augljóslega markhyggja. Þótt við teljum guðspeki og gullgerðarlist vera fánýt fræði í­ raunví­sindum í­ dag, þá voru þau það ekki á tí­ma Newtons. Það þurfti engan klaufskan kettling til að leiða Newton frá því­ sem við teljum í­ dag „alvöru ví­sindi“ yfir í­ guðfræðigruflið – þvert á móti var óhugsandi á þessum tí­ma að reyna að skilja lögmál náttúrunnar án þess að skilja lögmál guðdómsins.

Bestu rannsóknir fræðimanna nú um stundir á verkum Newtons taka einmitt tillit til þátta á borð við gullgerðartilrauna hans og stjörnuspekiáhuga. Færa má rök fyrir því­ – og það hefur raunar verið gert á áhrifarí­kan hátt – að stjórnmálaskoðanir og trúarhugmyndir Newtons og samtí­ðarmanna hans skipti geysilegu máli fyrir kenningalegan grundvöll eðlisfræði þeirra. Um þetta má lesa í­ hinni frábæru bók Leviathan and the Air-Pump sem er tí­mamótaverk í­ ví­sindasögunni.

Sem sagt – það er álí­ka lí­klegt að hundurinn og kertið hafi breytt þeirri stefnu sem ví­sindastarf Netons tók og að hann hafi í­ raun og veru fengið hugljómun þegar eplið féll á höfuð hans. (By the way – helví­tis eplatréð lifir enn og er orðið mörghundruð ára gamalt…)