Mogginn upplýsir að ofurmillinn Björgólfur sé 350. ríkasti maður í heimi, en hafi verið nr. 488 í fyrra.
Mér finnst aðdáunarvert að hægt sé að reikna út hver sé 488. ríkasti maður í heimi. En úr því að hægt er að finna það út, gefur auga leið að það hlýtur að vera vitað hver er sá 489. ríkasti – og hver sé nr. 490 eða 491…
Þetta þýðir jafnframt að úr því að herra Forbes veit hver er 491. ríkasti maður í heimi – þá hlýtur hann að vita númer hvað ég er í röðinni. Gaman væri að fá svör við því.