Eldri

Jæja, enn einn afmælisdagurinn að baki. Ég, Stebbi Hagalí­n, Geir Haarde og Búdda höfðum allir ástæðu til að gleðjast í­ gær.

Hagalí­n og Vala kona kona hans litu raunar í­ stutta heimsókn undir miðnættið. Við hefðum látið þau stoppa lengur ef húsið hefði ekki verið fullt af næturgestum. Tengdapabbi, Helga og Magnea gistu nefnilega hjá okkur tvær sí­ðustu næturnar í­ Reykjaví­kurheimsókninni en héldu austur í­ morgunsárið.

Meðan á dvöl þeirra stóð handsöluðum við samkomulag um að Magnea ráði sig til okkar hluta úr sumrinu – lí­klega upp úr miðjum júní­ – til að passa Ólí­nu. Það verður því­ ekki umflúið mikið lengur að ryðja til í­ gestaherberginu og breyta því­ í­ mannabústað.

# # # # # # # # # # # # #

Eina fermingarveisla ársins í­ famelí­unni var í­ gær. Þorgrí­mur frændi fermdist og hélt veislu í­ safnaðarheimili Kópavogskirkju. Við færðum honum Ví­sindabyltinguna eftir Andra Steinþór Björnsson að gjöf – það er tilvalin gjöf fyrir svona tilefni.

Sá í­ safnaðarheimilinu teikningar að fyrirhugðu nýju heimili gegnt listasafninu. Það er ótrúlegt að sjá þá breytingu sem orðið hefur á svæðinu milli kirkjunnar og Hamraborgarinnar. Með því­ að byggja yfir Peningagjánna virðist Kópavogsbúum ætla að takast að eignast almennilegan miðbæ. Eflaust munu áhugamenn um að hlutar Miklubrautar (og annarra stórumferðagatna) verði lagðir í­ stokk benda á þessa framkvæmd máli sí­nu til stuðnings.

# # # # # # # # # # # # #

Vegna fermingarveislunnar komst ég ekki á leik FRAM og íR í­ handboltanum, sem kom ekki að sök enda rótburstuðu FRAMarar Breiðhyltinga. Fátt er leiðinlegra á að horfa en ójafn handboltaleikur.

Spennan í­ Íslandsmótinu heldur því­ áfram. Eftir hálfan mánuð mætast FRAM og HK í­ Kópavogi. Þar má maður ekki láta sig vanta.

# # # # # # # # # # # # #

Luton gerði jafntefli við erkióvinina í­ Watford í­ morgun. Leikurinn var hvergi sýndur, sem er synd og skömm. Með jafnteflinu eyðilögðum við nær endanlega vonir Watford-manna um að komast beint upp. Þá er bara að vona að þeir misstí­gi sig lí­ka í­ umspilinu til að við getum mætt þeim á næsta ári lí­ka.

Á skoska boltanum tapaði Hearts fyrir Celtic og er nú ekki með nema þriggja stiga forystu á Rangers í­ baráttunni um Meistaradeildarsætið. Liðin eiga meira að segja eftir að mætast á Ibrox. Ekki get ég sagt að mér lí­tist nógu vel á þróun mála.

# # # # # # # # # # # # #

Festi fyrir helgi kaup á miðum á Manchester-tónleika Flugleiða og Grí­ms Atlasonar í­ Laugardalshöllinni. Hvernig er það með Echo & the Bunnyman, eru þeir vanir að taka mikið af gömlu lögunum á tónleikum eða má maður eiga von á nýju og óþekktu efni?