Það var áberandi í prófkjörsbaráttunni hjá mínum gamla vini og félaga Birni Inga fyrr í vetur, hvað hann skaut sér undan því í auglýsingunum sínum að nefna Framsóknarflokkinn á nafn. Þannig var alltaf auglýst að Björn Ingi ætti að vera í fyrsta sæti í Reykjavík – en ekki í fyrsta sæti á lista Framsóknar. Þetta er nokkuð frábrugðið því sem gerðist t.d. í auglýsingum frambjóðenda í prófkjörunum hjá íhaldinu og krötunum, þar sem flestir lögðu áherslu á nafn viðkomandi stjórnmálaflokks.
Um helgina mátti sjá fyrstu stóru blaðaauglýsingar Framsóknarmanna í Reykjavík fyrir kosningarnar. Á ljós kemur að þar er sama stefna og hjá Binga í prófkjörsbaráttunni: að fela nafn Framsóknarflokksins. Þannig er auglýst undir slagorðinu „Exbé“ og fólkið á listanum kynnt sem frambjóðendur B-listans.
Ætli það sé gaman að vera í forsvari fyrir stjórnmálaflokk og þurfa að sitja á fundi með ráðgjöfum frá auglýsingastofum sem útskýra að flokkurinn sé svo hataður og fyrirlitinn að best sé að fela nafnið hans?