Páskunum bjargað

Páskarnir eru tí­mi leiðinlegra sjónvarpsmynda með óljósa Biblí­ulega tengingu. Sömuleiðis eru þeir tí­mi splatterfrétta af x-mörgum óðum Filipseyingum sem krossfesta sig til að minnast pí­sla Krists. Aldrei hef ég skilið almennilega hvernig þeir ná að negla í­ gegnum seinni höndina.

Almennt séð eru páskarnir frekar fúl hátí­ð, nema fyrir reykví­ska skí­ðamenn – en yfirleitt eru páskarnir hluti af þessum tveimur vikum á árinu þar sem hægt er að renna sér í­ Bláfjöllum. Sjálfur steig ég sí­ðast á skí­ði um tí­u ára aldurinn. Skí­ðasport er skí­tasport – það hef ég alltaf sagt. (Engu að sí­ður held ég því­ alltaf á lofti að Steinunn hafi keppt á skí­ðum fyrir FRAM í­ gamla daga, svo hún er tæknilega séð FRAMari.)

Nema hvað, nú er páskunum bjargað. Á laugardaginn kemur verður nefnilega efnt til FRIíARPíPUNNAR, spurningakeppni SHA í­ Friðarhúsi. Hún hefst kl. 16. Allir velkomnir – keppt með hefðbundnu pöbba-kviss fyrirkomulagi, bókaverðlaun í­ boði.

Þar mæta allir góðir menn.

# # # # # # # # # # # # #

Heimsóttum Ragga Kristins og Brynju seinnipartinn. Inga litla er að verða fimm mánaða og er óskaplega lí­til. Einhvern veginn var heilinn búinn að blokkera á allar minningar frá þeim tí­ma þegar Ólí­na var svona lí­til og þurfti að halda á henni meira eða minna allan sólarhringinn.

Núna er Ólí­na nánast sjálfala. Það kom í­ ljós í­ morgun þegar ég lá hálfdottandi í­ sófanum í­ stofunni og hún læddist inn í­ eldhús þar sem hún komst í­ ruslafötuna, velti henni um koll og gúffaði í­ sig kaffikorgi. Ætli það sé skaðlegt að borða kaffikorg eða telst það bara góð upphitun fyrir að éta sand á leikskólanum?

# # # # # # # # # # # # #

Steinunn er búin að tryggja að maí­mánuður verður ekki átakalaus.