Horfði á kvöldfréttir Sjónvarpsins í gær. Þar var bankastjóri Landsbankans – Sigurjón, þessi sem einu sinni var í Búnaðarbankanum – að segja frá hagnaði fyrirtækisins á einhverju uppgjörstímabili.
Tölurnar voru háar, svo til að setja þær í „skiljanlegra samhengi“ tók hann fram hvað það væri hægt að kaupa mörgþúsund fimmmiljónkrónu jeppa fyrir gróðann.
Hversu firrtir mega menn vera til þess að nota fimmmiljónkrónu jeppa sem þægilega viðmiðun í útreikningum?
# # # # # # # # # # # # #
Middlesborough vann ótrúlegan sigur í gær á Stjörnunni. Liðið er komið í úrslit Evrópukeppni félagsliða og gæti alveg farið þar með sigur af hólmi. Það yrði í fyrsta sinn sem lið yrði Evrópumeistari án þess að hafa nokkru sinni unnið titil í heimalandi sínu. Merkilegt.