Úff, núna eru þeir Framsóknarmenn svo sannarlega búnir að rassskella mig. Á vefriti sínu benda þeir á að Vinstrihreyfingin-grænt framboð sé einatt skammstafað VG og þess vegna sé bara kjánalegt af okkur kommunum að stríða Framsókn á Exbé-heitinu.
Hér er ég augljóslega orðinn heimaskítsmát og mun hugsa mig tvisvar um áður en ég hjóla aftur Framsóknarmenn. Lesið endilega færsluna hérna…