Jæja…
Það tók drjúgan tíma að berja sig í gegnum bloggsíðufrumskóginn í morgun, því auðvitað var ég nógu hégómlegur til að vilja lesa það sem fólk hafði til málanna að leggja um Kastljósþátt gærdagsins með okkur Salvöru. Einhverjir svekkja sig yfir því að þátturinn hafi verið frekar þurr. Auðvitað var hann þurr. Reyndar var ég búinn að setja mig í ennþá greindarlegri stellingar fyrir upptöku og byrjaður að æfa í huganum lærðar ræður um það hvernig líf á netinu endurspeglaði postmódernískt ástand samtímans; muninn á lýðræðislegum og gerræðislegum tæknikerfum; kenningar um útbreiðslu tæknikerfa og breyttum viðtökuhópum tækninnar og fræðilegar pælingar um blogg sem heimildir fyrir sagnfræðinga framtíðarinnar. – Einhvern veginn fokkaðist það allt upp þegar í upptöku var komið.
Sigmar og Eva María voru greinilega komin í þann gír að velta sér mikið upp úr „skuggahliðum“ bloggsins, væntanlega innblásin af „stóra blogg-eineltismálinu“ úr Séðu og heyrðu. Sem betur fer féllu þau á tíma áður en sú umræða komst verulega í gang. Að reyna að gera það að einhverju aðalmáli að hægt sé að níða skóinn af einhverjum á bloggsíðunni sinni er stórkostlegur misskilningur á eðli og tilgangi bloggsins. – Er ég sá eini sem man eftir því þegar Logi Bergmann Eiðsson flutti æsifréttina þar sem hann stóð fyrir utan Tæknigarð og upplýsti almenning um að Háskólinn væri að fjármagna og ýta að fólki einhverju sem héti „Inter-net“ og að þar flyti allt af barnaklámi og viðbjóði…
* * *
Erna vill ekki búa til nýtt orð í staðinn fyrir blogg. Þar sem hún er íslenskufræðingur þori ég ekki að mótmæla.