Nú er ég alveg hættur að botna í þessu Eyþórs Arnalds-máli. Samkvæmt fréttum í dag er Eyþór snúinn aftur sem oddviti hjá íhaldinu í írborg. Samkvæmt NFS lítur hann á úrslit kosninganna sem traustsyfirlýsingu – það er sem sagt ekki lengur þörf á að bíða eftir að málið gangi sinn gang í dómskerfinu, eins og áður hafði verið talað um.
En nú skil ég ekki – sagði Eyþór Arnalds ekki einmitt af sér oddvitastöðunni fyrir kosningar til þess að kosningarnar snérust EKKI um ölvunarakstursmál Eyþórs. Lagði Eyþór ekki einmitt áherslu á að fólk ætti ekki að refsa flokknum fyrir afbrot hans í kosningunum?
Á ljósi þess, hvernig geta úrslit kosninganna á nokkurn hátt verið traustsyfirlýsing við Eyþór? Það verður ekki bæði sleppt og haldið.