Kverkaskítur, hálsbólga og kvef… …nei,

Kverkaskí­tur, hálsbólga og kvef…

…nei, hafið ekki áhyggjur kæru lesendur. Landsins frægasti og besti bloggari liggur ekki fyrir dauðanum heldur hans ektakvinna sem hóstaði samfellt í­ tólf klukkutí­ma í­ gærkvöld og nótt. Því­ miður hefur Steinunn tekið upp þann ljóta sið eftir mér að vola og væla í­ hvert sinn sem henni verður misdægurt. Þetta þýðir að ég þarf að leika einhverja h****** Florence Nightengale í­ kvöld og get því­ væntanega ekkert rifjað upp hina stórgóðu og skemmtilegu ví­sindaheimspekibók Knowledge and Social Imaginary eftir David Bloor eins og ég var þó búinn að lofa Skúla Sigurðssyni að gera.

Skúli, meistari minn og lærifaðir á sviði ví­sinda- og tæknisögu, er nefnilega á leiðinni heim á skerið í­ þessari viku, þar sem hann ætlar að:

a) tala á málþingi um alþjóðavæðingu um næstu helgi og er búinn að pí­na mig til að halda smá tölu.

b) klára ásamt mér grein um undirstöður félagsfræði ví­sindaþekkingar (og þess vegna þarf ég að komast í­ að klára Bloor).

– Sem sagt, ví­sindin ví­kja fyrir sjúkraliðahlutverkinu.

* * *

Ekki ætla ég að skrifa stafkrók um skemmtikvöld Múrsins utan það að eftir þessa glæsilegu byrjun er Freyr Eyjólfsson fær í­ flestan sjó sem trúbador. Raunar hitti ég Frey aftur á laugardeginum á landsleik dauðans. – Hvað er að? Af hverju kunna varnarmennirnir okkar ekki að senda boltann? Hves vegna er fyrstu deildar leikmaður úr Kebblaví­k í­ landsliðinu? Akkurru? Akkurru?

Eftir leikinn ákváðum við Freyr að drekkja sorgum okkar á Grand Rokk. Þar duttum við inn á dagskrá andstæðinga virkjanaáformanna fyrir austan. Ég verð að segja að þessir laugardagsfundir á Grand Rokk eru að sví­nvirka. Þarna er fullt af fólki, stemningin góð, skemmtiatriðin frábær og fyrirlestrarnir flottir. – Landsliðið sökkar, umhverfisvinir rokka!

* * *

Það fór þó ekki allt illa í­ boltanum um helgina. Luton vann Celtenham og er komið fyrir ofan miðja deild. Það skyldi þó ekki vera að við meikuðum það í­ play-offs? – (Stilltu þig gæðingur – aldrei gott að fara upp tvö ár í­ röð…)