Nú er ég mjög hógvær maður…
…eins og allir vita. Fátt væri því fjær mér en að monta mig yfir hlutum á borð við vasklega framgöngu í fóltbolta eða öðru slíku. Það verður þó ekki hjá því komist að vitna hér í bloggið hans Svenna Guðmars um sunnudagsboltann. Þar segir hann:
Ég verð að sjálfsögðu að gefa skýrslu um leiki dagsins hjá Sheffield Sunday. Á mínu liði voru þeir Þórir, Pétur og Hallgrímur, en á móti okkur léku þeir Kjartan, Sigfús, Gunnar og Stebbi. Fyrsti leikurinn var æsispennandi og var jafnt á með liðum framan af leik. Þegar staðan var 9-8 fyrir okkur gerði ég hörmulega tilraun til að sóla Stebba, hann náði af mér boltanum og skoraði. Á næstu sókn settu kvikindin sigurmarkið og við sátum eftir með sárt ennið. Næsti leikur var svo hrein hörmung. En allt um það, þetta var skemmtilegur tími eins og alltaf.
Hér er Svenni alltof harður við sjálfan sig. Ég myndi alls ekki segja að um „hörmulega tilraun“ hafi verið að ræða – þvert á móti bar Svenni sig mjög fimlega við að reyna að snúa sér fram hjá menn og eflaust hefði hann leikið minni spámenn grátt, en ég var kattliðugur og vel á verði og náði því knettinum af harðfylgi og skoraði glæsilegt mark þrátt fyrir vasklega framgöngu Hallgríms. Rétt skal vera rétt!
* * *
Annars gerir Svenni vel í að benda lesendum á viðtal Fréttablaðsins við Sibba – hugsanlega yngsta sóknarprests landsins. Reyndar tekst Fréttablaðinu að draga upp hálf dauflega mynd af Sigfúsi með því að velta sér upp úr afrekum hans innan skátanna. Það sem þeir geta ekki um er að Sibbi var í skátafélaginu Ægisbúum, en Ægisbúar voru alræmdir innan skátahreyfingarinnar fyrir svall og ólifnað. Á sínum tíma var meira að segja búið til hugtakið „klám-skáti“ til að lýsa þeirri kynslóð skátaforingja sem Sibbi tilheyrir.
* * *
Maður fær nú næstum því heimþrá aftur til Edinborgar við að lesa bloggið hans Rabba. Rafn er góður drengur og vonandi verður hann ekki lengi að læra inn á alla bestu barina í höfuðborg Skotlands. – Ef marka má síðustu bloggfærslur virðist hann raunar vera á góðri leið í því efni.
Þá var ég að frétta að Bandaríkjamaðurinn Doug, einn allra besti vinur minn í útlegðinni á sínum tíma sé aftur kominn til Edinborgar. Þar með er orðið einsýnt að ég þarf að fara þangað í heimsókn hið fyrsta.
* * *
Á áðan var ég rannsakaður með félagsfræðilegum aðferðum til að komast að því hvaða tækni ég beiti í fyrirlestrahaldi í störfum mínum. Það var móðir Óla Njáls sem gerði þessa merku rannsókn sem ég vona að komi út á bók hið fyrsta…
* * *
Næsta tíser-herferð er hafin úr því að það tókst svona vel að auglýsa 11. október.
Hvar verður þú 24. og 26. október???