Um fermingar

Ferming unglinga er bæði apaspil (Affenspiel) og vitleysisgangur (Gaukelwerk).


Hafið ekki áhyggjur lesendur góðir – ég er ekki genginn til liðs við Vantrúarhópinn og ætla ekki að stofna til ritdeilna við fyrrverandi eða núverandi guðfræðinema. Ég er bara að vitna í­ ummæli annars manns um fyrirbærið fermingu. Sá maður hét Marteinn Lúther.

 

Fermingin var eitt af því­ sem Lúther var ósáttur við í­ kaþólskunni. Hann taldi hana ekki eiga sér stoð í­ Biblí­unni og vera guðfræðilega vafasama. Fyrir vikið telst fermingin ekki vera sakramenti í­ lútherskunni, öfugt við það sem er í­ kaþólskum sið.

 

Þrátt fyrir að Lúther hefði ekkert álit á fermingunni sem slí­kri, gerðu sporgöngumenn hans ekki mikið til að uppræta þennan sið úr kirkjudeildum sí­num. Lí­kleg skýring á því­ er sú að menntafrömuðir á borð við Erasmus frá Rotterdam sáu fermingarundirbúninginn sem notadrjúgt tæki til að ná fram almennum menntunarmarkmiðum.

 

Sí­ðar, þegar dönsk stjórnvöld fóru að huga að menntun þegna sinna og vildu tryggja að allir (í­ það minnsta karlarnir) gætu stautað sig í­ gegnum einfaldan texta og jafnvel dregið til stafs, gripu þau til fermingarinnar. Fermingin varð þannig á átjándu öld að eins konar samræmdu lestrarprófi í­ danska rí­kinu.

 

Það eru öðru fremur þessi menntunarpólití­sku markmið danska rí­kisvaldsins hér á öldum áður sem valda því­ að hærra hlutfall unglinga á Íslandi, í­ Færeyjum og í­ Danmörku fermast en gerist og gengur í­ öðrum lúthersum samfélögum. Langt er sí­ðan hlutfall fermdra byrjaði að lækka í­ Danmörku, einkum í­ þéttbýli. Til sveita fermast ennþá flestir Danir – lí­kt og hér á landi og í­ Færeyjum.

 

Á ljósi þessa finnst mér alltaf jafnhlálegt þegar skammast er út í­ borgaralega fermingu á þeim forsendum að þar séu trúleysingjarnir að “stela” kirkjulegri athöfn. Veruleikinn er sá að í­ samfélögum mótmælenda hefur fermingin lifað VEGNA hins borgaralega eðlis hennar. Það má í­ rauninni segja að sú fræðsla sem stunduð er í­ tengslum við borgaralegu ferminguna (alhliða lí­fsleikni og samfélagsfræðsla) sé rökréttara framhald af þeirri fermingu sem Erasmus frá Rotterdam og sí­ðar upplýsingarmenn 18. aldar stóðu fyrir en sú kennsla sem á sér stað í­ kirkjum landsins í­ dag.

 

Mér finnst þess vegna mun rökréttara að trúlaus börn fermist borgaralega en að lúthersk börn fermist í­ kirkju. – Og þar hafið þið það!

 

(Rétt er að taka fram að sjálfur fermdist ég hvorki kirkjulega né borgaralega. Ég svaf út á laugardögum veturinn sem jafnaldrar mí­nir gengu til prestsins og held að þeim tí­ma hafi verið betur varið þannig.)