– Það er langt síðan ég hef efnt til spurningakeppni hér á síðunni. Best að bæta úr því snarlega.
Verður nú blásið til spurningakeppninnar: Kannastu við kauða? Spurt verður um einstaklinga og vísbendingar hafðar jafn margar og þurfa þykir. Sá sem fyrstur svarar í athugasemdakerfið fær eitt stig. Aðrir ekkert. Á dag er föstudagur þrettándi og því verða spurningarnar þrettán alls.
Fyrsta spurning, fyrsta vísbending:
Um manninn var ort:
…en gott er að hafa af guðshúsi vörn
ef gerast þau ósköp að jafnréttið sigrar.
Hver er maðurinn?