Þær voru skemmtilegar teiknimyndasögurnar um njósnarana tvo í MAD-blöðunum í gamla daga (og birtast raunar enn). Þar áttust við tveir njósnarar – sá svarti og sá hvíti. Skiptust þeir á að vinna hinum mein með klækjabrögðum, nema í örfáum sögum sem hétu Spy vs. Spy vs. Spy – þar sem þriðji njósnarinn, gráklætt klækjakvendi skaut báðum ref fyrir rass.
Â
Mér er til efs að raunverulegir njósnarar líti út eins og fígúrurnar í Spy vs. Spy. Er ekki grundvallaratriði í störfum njósnara að geta starfað með leynd og án þess að grunur falli á þá? Spyr sá sem ekki veit.
Â
Nú er því haldið fram að íslenskir ráðamenn hafi haft af því áhyggjur að Svavar Gestsson, fyrrum námsmaður í Austur-Berlín, ritstjóri Þjóðviljans og þingmaður Alþýðubandalagsins hafi njósnað fyrir STAST – leyniþjónustu Austur-Þýskalands. Virðast menn hafa álitið framangreind tengsl sérstök rök fyrir því að Svavar hefði verið ákjósanlegur njósnari. – Á mínum huga hefði Svavar Gestsson einmitt verið versti kostur STASI til njósna á Íslandi.
Â
Ég er þó ekki að segja að ráðning Svavars hjá yfirvöldum í Austur-Berlín hefði verið vitlausasta ráðning njósnara sem hugsast gæti. Hér fylgja nokkrar tillögur að ráðningarmálum sem væru jafnvel vanhugsaðri:
Â
1. Baldur Þórhallsson, ráðinn af Evrópusambandinu til að komast inn í raðir ESB-andstæðinga í Heimssýn og senda skýrslur um þá til Brí¼ssel.
Â
2. Helgi Hóseason, ráðinn af trúleysingjasamtökunum Vantrú til að fylgjast með biskupi og öðrum hæstráðendum Þjóðkirkjunnar.
Â
3. Andrés Magnússon, ráðinn af Mossad til að hafa eftirlit með Félaginu Ísland-Palestína. Mögulega gæti Andrés fengið vinnuaðstöðu á sjónvarpsstöðinni Ómega og haft hana sem yfirvarp.
Â
4. Björn Bjarnason, ráðinn af CIA til að fylgjast með íslenskum friðarsinnum.
Â
5. írni Finnsson, fenginn af Greenpeace til að ráða sig sem flensara í hvalstöðina til að afla mikilvægra gagna.
Â
6. Smári Geirsson, ráðinn af Iðnaðarráðuneytinu til að kynna sér starfsemi virkjanaandstæðinga.
Â
7. Örn Clausen, ráðinn af landssambandi karlrembusvína til að spæja um Feministafélagið.
Â
8. Kristinn H. Gunnarsson, fenginn af stjórnarandstöðunni til að ganga í raðir Framsóknarflokksins og starfa þar sem fimmta herdeild… uhh… nei annars – slæmt dæmi.
Â
9. Snorri Óskarsson í Betel, skipaður af HAKK (Hagsmunaráði kynvísra karlmanna) til að grafast fyrir um helstu leyndarmál Samtakanna 78.
Â
10. Sindri Eldon, fenginn af Reykjavík Grapevine til að snuðra um aðdáendaklúbb Bubba Morthens og afhjúpa djúsí innanfélagsslúður.