Komið og sjáið!

Um daginn var ég beðinn um að taka að mér smáverkefni.

Félag kvikmyndafræðinema stendur fyrir sýningum í­ Stúdentakjallaranum á þriðjudagskvöldum og í­ kvöld á ég að kynna óformlega myndirnar sem sýndar verða.

Þetta verkefni virtist sakleysislegt – en það er búið að eyðileggja fyrir mér daginn.

Lokamynd kvöldsins er nefnilega Komið og sjáið, hví­trússnesk mynd frá 1985. Ég sá þessa mynd fyrir mörgum, mörgum árum sí­ðan og það er eitthvert versta sjokk sem ég hef orðið fyrir. Engin önnur kvikmynd hefur haft önnur eins áhrif á mig og margar senurnar lí­mdust í­ huga mér og sátu þar í­ mörg ár.

Núna eru þær búnar að vera að rifjast upp hver á fætur annarri – og depurðin eykst í­ beinu samhengi. Mig langar mest að fara skæla og halda svo beint heim að leika við litlu stelpuna mí­na – og gleyma svo öllu um þessa kvikmynd.

Það eru ví­st allir velkomnir í­ Stúdentakjallarann í­ kvöld. Dagskráin hefst kl. 20 á stuttum myndum áður en ósköpin dynja á. Ef þið viljið sjá ógleymanlega bí­ómynd þá mætiði í­ kvöld… en það er búið að vara ykkur við afleiðingunum.