Dæmi 1:
Einhverjir útlenskir peningamenn varpa fram þeirri hugmynd að kaupa hvölunum sem Kristján Loftsson ætlaði að skutla líf. Viðbrögðin við þeirri hugmynd eru á þann veg að þetta sé algjört rugl. Kristján hafi veitt hvali eins lengi og elstu menn muna og við því megi ekki hrófla. Auk þess sé varla hægt að hugsa sér neitt firrtara en útlending sem hendir peningum í að veiða EKKI einhverja skepnu.
Dæmi 2:
Orri Vigfússon, íslenskur peningamaður, flengist út um allar grundir og safnar peningum til að borga íbúum nágrannalandanna fyrir að veiða ekki lax í net. Á leiðinni gerir hann reknetamenn sem hafa nytjað þessa fiskistofna í áratugi atvinnulausa. Orri þykir það svalasta sem fram hefur komið síðan Jón Gústavsson kynnti Unglingana í frumskóginum. Hann fær medalíu frá forsetanum og er talinn hetja.
Er ekki mismunurinn á þessum dæmum auðsær?
# # # # # # # # # # # # #
Les í Fréttablaðinu að Ari og Úlfur Eldjárn komi að því að semja áramótaskaupið. Þá er von á góðu.
# # # # # # # # # # # # #
Valdimar Leó varð Sveinn Andri prófkjörsins í gær. Enn hvað það var nú fyrirsjáanlegt.
Það sem af er virðast prófkjörin ekki ætla að skila krötunum góðum listum. Þessi listi í SV-kjördæmi er ekki sterkur. Ég held að maður þurfi að vera fastagestur við borðið hans írna Björns á Súfistanum í Hafnarfirði til að geta talið sér trú um annað.
Spurt er: Mun þessi höfnun duga til þess að Jakob Frímann Magnússon hætti að gæla við að komast á þing?
Svar: Dream on…
# # # # # # # # # # # # #
Síðdegis verða birt úrslitin í prófkjörinu hjá Samfylkingunni í Suðurkjördæmi. Mér skilst að kynjakvótinn þar sé öðruvísi en í hinum landsbyggðarkjördæmunum. Þar þurfti minnst einn frambjóðanda af hvoru kyni á topp 3. Þarna er mér sagt að dugi að hafa tvo á topp 5. Það þýðir að uppstillingin: karl-karl-karl-kona-kona gengur upp.
Hentugt hjá krötunum að í þeim kjördæmum þar sem flokkurinn getur búist við tveimur mönnum, sé þriðja sætið frátekið fyrir konur – en þar sem von er á þremum fulltrúum (kosningasigurinn síðast skýrðist m.a. af sérframboði Kristjáns Pálssonar) þaar er fjórða sætið fyrir konurnar. Kynjakvótinn tryggir sem sagt varaþingmannssætin.
Lélegt.