If you can fill the unforgiving minute
With sixty seconds’ worth of distance run,
Yours is the Earth and everything that’s in it,
And–which is more–you’ll be a Man, my son!
Loksins tókst Luton að vinna sigur, eftir átta leikja samfellda taphrinu (sem er lengsta taphrina félagsins í meira en 100 ár). Andstæðingarnir voru ekki af verri endanum, topplið Preston. Botninum er náð og viðspyrnan hafin.
Mike Newell var skáldlegur og sagðist hafa leitað huggunar í ljóðið If eftir Rudyard Kipling.
Á ljósi óheppilegra yfirlýsinga Newells fyrr á tímabilinu er ég mjög feginn því að hann valdi þetta ljóð eftir Kipling en ekki t.d. The White Man´s Burden.
Um helgina var líka dregið í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar. Stórleikur hennar verður á Loftus Road, þar sem QPR tekur á móti Luton. Við Stebbi Hagalín verðum límdir við viðtækin meðan á leik stendur – eins gott að þrjótarnir í 365 miðlum verði þá byrjaðir aftur að endurvarpa BBC World Service. Hvaða apaketti datt í hug að klippa á þær útsendingar?