Dráttur

Á gær rakst ég á gamansögu sem ég held að ég hafi fyrst lesið í­ Íslenskri fyndni. Af samhenginu þar sem hún er núna birt má ætla að hún sé frá fyrri hluta ní­tjándu aldar.

Það kemur mér nokkuð á óvart, þar sem í­ sögunni er orðið dráttur notað í­ merkingunni kynmök. ín þess að hafa sérstaklega velt því­ fyrir mér fyrr, hefði maður haldið að þetta væri miklu yngra slanguryrði.

Nú veit ég að fjöldi í­slenskufræðinga lúsles þessa sí­ðu. Gaman væri því­ að fá að vita:

Hversu gömul er þessi merking orðsins dráttur? Af hverju skyldi hún vera dregin? Og eru sambærileg orð notuð í­ þessari merkingu í­ granntungunum?

# # # # # # # # # # # # #

Glæsilegur sigur hjá Safamýrarstórveldinu í­ bikarnum í­ kvöld. Það er vel af sér vikið að vinna á Akureyri. Þá er bara að komast í­ bikarúrslitin og redda fjárhag handboltadeildarinnar þetta árið.

# # # # # # # # # # # # #

Á kvöld byrjuðum við Sverrir að fara yfir heimaprófið nemendanna okkar í­ ví­sinda- og tæknisögunni. Kláruðum að mestu eina spurningu af þremur. Það væri fí­nt að ná hinum tveimur í­ þessari viku, áður en ritgerðirnar byrja að detta inn.